Aðalsverjar eru nú loksins komnir á sitt venjulega ról eftir
Tælandsferðina. Við erum flest farin að vinna og þurfum aftur að
klæða okkur vel fyrst við erum komin til kalda Íslands. Það er sko
ekki lengur 30 stiga hiti. Það er alveg greinilegt.
Margir úr Aðlinum áttu líka við það vandamál að stríða, eftir
að þeir komu heim, að verða óskaplega þreyttir
snemma á kvöldin og vakna svo allt of snemma á morgnana. Ég var ein
af þessum ólukkulegu manneskjum og var iðulega sofnuð um níuleytið
og vöknuð í kring um sjö. Það var „skemmtileg“ reynsla en ég er
fegin að henni er lokið og vona að hinir sem þjáðust af þessu
vandamáli séu lausir undan kvöðinni.
Nú er Aðallinn líka farinn að dreifast um heiminn og vonandi
líður ekki á löngu þar til við yfirtökum hann. Það tekst ef við
tökum bara eina heimsálfu fyrir sig. Nú þegar höfum við farið í
yfirlitsferð til Asíu, erum búin að senda einn fulltrúa til Ameríku
og í dag hverfur einn á braut til Ástralíu í Eyjaálfu. Eins og sést
þá erum við skipulögð og tökum þær næstum því í stafrófsröð. Það
þýðir að sjálfsögðu að Evrópa er næst, en við erum náttúrulega með
hana á hreinu þar sem við erum Evrópubúar og eins og við öll vitum:
Best í Heimi!
Bóel er sem sagt farin út til BNA að heilsa upp á Bush og
félaga. Hún fór á mánudaginn. Í dag flýgur hún Björg svo til
Ástralíu þar sem hún ætlar að heilsa upp á fólkið í Ramsey Street
og hann Russel Crowe félaga okkar.
Að lokum vil ég bara óska stelpunum góðs gengis og góðrar
skemmtunar í útlöndunum. Carpe Diem!
Kveðja Kristín.